Óvíst með Gylfa fyrir fallslaginn í kvöld
Óvíst er hvort Gylfi Þór Sigurðsson nái að spila með Reading í Íslendinga- og fallslag gegn Plymouth í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Liðin sem bæði eru í fallsæti deildarinnar eigast við á Madejski leikvanginum í Reading.
Gylfi missti af sigurleik Reading í Doncaster á laugardaginn og Brian McDermott knattspyrnustjóri félagsins sagði við staðarblöðin í Reading að það yrði metið á síðustu stundu í dag hvort hann væri orðinn leikfær eða ekki.
Ívar Ingimarsson, Brynjar Björn Gunnarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson eru annars í leikmannahópi Reading og Kári Árnason verður örugglega í stöðu miðvarðar hjá Plymouth.
Til baka







Senda inn efni
