Rebecca Loos á grænni grein

Rebecca Loos í viðtali við Sky.
Rebecca Loos í viðtali við Sky. AP

Rebecca Loos hefur grætt um 800.000 pund, alls um um 105 milljónir íslenskra króna á því að fullyrða að hún hafi átt í ástarsambandi við David Beckham. Þetta fullyrðir Max Clifford, sem er umboðsmaður hennar. Í viðtali við Clifford í Lundúnablaðinu Evening Standard greinir Clifford frá því að Loos hafi fengið 150.000 pund fyrir viðtal sem birtist við hana á Sky-sjónvarpsstöðinni síðastliðinn fimmtudag.

Hann sagði að hún hefði fengið 350.000 pund fyrir viðtal í News of the World, vinsælasta æsifréttablaði Breta á sunnudögum, en þar upplýsti Loos um samband sitt við Beckham. Sjálfur segist hann hafa fengið um 160.00 pund í tekjur fyrir að sjá um mál Loos í tengslum við meint samband hennar og Beckhams.

Beckham hafnar fullyrðingum Loos og segir þær fáránlegar, en Loos var aðstoðarkona hans þegar hann hóf að leika með spænska liðinu Real Madrid. Loos segist hafa sofið hjá Beckham þegar hann var nýfluttur til Madrídar og Victoria kona hans var enn í Bretlandi.

Sögur af framhjáhaldi Beckhams tóku svo nýjan kipp, þegar fyrirsætan Sarah Marbeck, sem er af malasískum uppruna, sagðist hafa átt í tveggja ára ástarsambandið við Beckham, sem hefði hafist í ferð Manchester United til Singapore í júlí 2001.

        Í gær steig svo þriðja konan, að nafni Celina Laurie, fram í sviðsljósið og sagði í viðtalið við blaðið People að hún hafi átt kynmök við Beckham í ágúst 2002, í Árósum í Danmörku eftir leik Manchester United þar.

Loos mun koma fram í spjallþætti á sjónvarpsstöðinni Channel Four í Bretlandi í dag, en Marbeck er sögð eiga í viðræðum um viðtöl við aðra breska fjölmiðla.

    Clifford, umboðsmaður hennar, sagði að Loos hefði leitað til sín og lýst yfir áhyggjum af því að ferli hennar sem aðstoðarkonu einstaklinga væri lokið, upplýsti hún um samband sitt við Beckham. „Ég útskýrði fyrir henni að hún gæti fengið svo mikla peninga fyrir að skýra frá þessu að hún þyrfti aldrei að vinna framar,“ sagði Clifford.

David og Victoria Beckham hafa brosað blítt þegar þau sjást …
David og Victoria Beckham hafa brosað blítt þegar þau sjást saman opinberlega að undanförnu, þrátt fyrir fullyrðingar þriggja kvenna um að David hafi átt í ástarsambandi við þær. AP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant