Kiefer kominn með nýja kærustu?

Kiefer Sutherland ásamt vini sínum Rocco Deluca á Kofa Tómasar …
Kiefer Sutherland ásamt vini sínum Rocco Deluca á Kofa Tómasar frænda á síðasta ári.

Leikarinn þekkti úr 24 þáttaröðinni, Kiefer Sutherland, er að sögn farinn að hitta nýja stúlku á stefnumótum en fyrir stuttu komst samband hans við hina íslensku Kristínu Haraldsdóttur í hámæli.

Stúlkan sú heitir Eva Longoria og leikur eitt aðalhlutverkanna í þáttunum Aðþrengdar eiginkonur (e. Desperate Housewifes). Erlendir netmiðlar greina frá þessu í gær og rekja um leið nýlegar fréttir um vinskap þeirra Kiefers og Kristínar. Raunar er það þó svo að Yahoo News gerir samband þeirra að umtalsefni án þess að minnast á Longoria. Í frétt Yahoo kemur fram að Kristín hyggi á flutninga til New York í náinni framtíð og að faðir hennar hafi hitt Kiefer.

Á vefnum contactmusic.com er greint frá því að fyrr í mánuðinum hafi Kristín látið hlý orð falla í hans garð: "Kiefer er frábær. Hann er jarðbundinn og gaman að vera með honum. Það eru góðir straumar á milli okkar." Engu að síður herma heimildir contactmusic.com að Sutherland og Longoria hafi sést á rómantískum stefnumótum eftir að hafa hist í Kanada við tökur á kvikmyndinni The Sentinel.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson