Britney Spears hefur nú í fyrsta sinn sýnt heimsbyggðinni son sinn, Sean Preston. Eru Spears og eiginmaður hennar, Kevin Federline, með drenginn á forsíðu nýjast tölublaðs People, sem kemur í búðir í Bandaríkjunum á föstudaginn. Myndin var tekin fyrir um mánuði.
Spears segir blaðinu að hún sé í skýjunum yfir því að vera orðin mamma og viti ekkert yndislegra en að fá sér síðdegisblund með stráknum, sem er níu vikna.
Myndirnar af fjölskyldunni voru birtar á netinu í síðasta mánuði, en voru teknar niður eftir fáeinar klukkustundir þegar útgefandi Spears, Jive Records, hótaði lögssókn.