Leikarinn Josh Holloway þykir „mesti foli“ allra sjónvarpsþátta, skv. niðurstöðu könnunar bandaríska tímaritsins In Touch Weekly. Holloway leikur hinn ódæla Sawyer í „Lífsháska“ (e. Lost).
Leikkonan Evangeline Lilly, sem leikur Kate í sömu þáttum, segist skilja vel að Holloway sé orðinn kyntákn. Hann opni dyr fyrir konur, beri poka fyrir þær og veiti þeim öryggistilfinningu. Holloway bar sigurorð í folavalinu af mótleikara sínum í Lífsháska, Matthew Fox, sem leikur lækninn Jack. Fréttavefurinn BangShowbiz greinir frá þessu.