Leikkonan Sharon Stone, sem er hvað þekktust fyrir túlkun sína á hættulegri kynbombu í kvikmyndinni Basic Instinct, segist glöð kyssa hvern sem er ef það leiði til friðar í Mið-Austurlöndum. Stone er nú í heimsókn í Ísrael í boði Peres friðarstofnunarinnar, sem nefnd er eftir Shimon Peres, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels.
Fjölmiðlar hafa fylgst vel með ferðum Stone, sem kallað hefur eftir nánara samstarfi karla og kvenna á þessu heimssvæði og að þátttaka kvenna í friðarviðræðum yrði að vera meiri í karlaveldi Mið-Austurlanda. Konur ættu auðveldara með að setja sig í spor annarra.
Stone lék knattspyrnu með blönduðum hópi palestínskra og ísraelskra barna og heimsótti einnig ísraelskan spítala fyrir palestínsk börn. Stone heldur upp á 48 ára afmæli sitt í dag með galakvöldverði og fjáröflun til menntunar og heilbrigðisþjónustu barna á svæðinu. BangShowbiz greinir frá því í fréttaskeyti sínu.