Snoop Dogg handtekinn með eiturlyf við myndver NBC

Snoop Doog hefur oftar en einu sinni komist í kast …
Snoop Doog hefur oftar en einu sinni komist í kast við lögin Reuters

Rapparinn Snoop Dogg var handtekinn í gærkvöldi eftir að hann yfirgaf myndver NBC í Burbank nærri Los Angeles í Bandaríkjunum. Rapparinn var að koma úr upptökum á spjallþætti Jay Leno þegar hann var handtekinn, en í bíl hans fannst skammbyssa, kókaín og maríjúana. Þetta er í þriðja sinn sem tónlistarmaðurinn kunni, sem m.a. hefur heimsótt Ísland, kemst í kast við lögin á þremur mánuðum.

Í október síðastliðnum fundust eiturlyf og byssa í bíl Dogg þegar hann var stöðvaður fyrir að leggja ólöglega við Bob Hope flugvöllinn í Los Angeles, en hann var kærður fyrr í mánuðinum fyrir að hafa reynt að fara um borð í flugvél með litla kylfu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant