[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Kvikmyndaleikarinn Ben Affleck.

Kvikmyndaleikarinn Ben Affleck. mbl.is

Veröld/Fólk | mbl.is | 29.4.2003 | 16:50

Lopez reynslunni ríkari

Bandaríska söng- og leikkonan Jennifer Lopez er sögð hafa farið fram á það við unnusta sinn Ben Affleck að hann skrifi undir kaupmála áður en þau ganga í hjónaband þar sem kveðið er á um að hún fái helming allra eigna hans verði hann uppvís að framhjáhaldi en helming þeirra tekna sem hann vinnur sér inn á meðan hjónabandið varir komi til skilnaðar þeirra af öðrum orsökum. Þá er hún sögð krefjast þess að hún fái fullt forræði yfir hugsanlegum börn þeirra komi til skilnaðar og að Affleck afsali sér öllum umgengnisrétti við börn þeirra.

Lopez er einnig sögð krefjast þess að hún haldi öllum eignum þeirra og tekjum af sameiginlegum verkefnum þeirra komi til skilnaðar sem rekja megi til framhjáhalds Afflecks. Lögfræðingar Afflecks munu hins vegar hafa aftekið með öllu að samþykkja að hann fallist á kaupmálann.

Jennifer var áður gift þjóninum Ojani Noa og síðan dansaranum Cris Judd en sá síðarnefndi er sagður hafa hlotið 9 milljón bresk pund við skilnað þeirra.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir