[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Adriano og Ronaldinho hinir brasilísku fagna marki þess fyrrnefnda í leik Brasilíu og Ástralíu í gær.

Adriano og Ronaldinho hinir brasilísku fagna marki þess fyrrnefnda í leik Brasilíu og Ástralíu í gær. Reuters

Veröld/Fólk | mbl.is | 19.6.2006 | 16:23

Maður sem rændi HM miða af konu var gripinn af eiginmanni hennar

Þjófur einn sem stal aðgangsmiða að leik Brasilíumanna og Ástrala á HM í knattspyrnu í gær úr veski konu nokkurrar, var gripinn glóðvolgur þegar hann settist við hlið eiginmanns hennar. Eiginmaðurinn lét öryggisverði vita af manninum sem sat í sæti konunnar og var þjófurinn handtekinn skömmu síðar.

Talsmaður lögreglunnar í München, þar sem leikurinn fór fram, segir þjófinn ekki hafa átt von á því að eiginmaðurinn myndi sitja í næsta sæti. Ananova fréttavefurinn segir af þjófinum grandalausa.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir