Gillzenegger tók bloggfærslu út fyrir mömmu
Bloggað um fréttina
-
Bjartmar Oddur Þ AlexanderssonMálfrelsi
-
Haukurinn"Djöfull er ég flottur, megaháttar báðum megin.
-
Gaukur ÚlfarssonMissum Okkur!
-
Jenný Anna BaldursdóttirGilzenegger ofurhetjan hugumstóra
-
Stefán Friðrik StefánssonÓgeðsleg skrif hjá Gillzenegger
-
Hlynur HallssonAf hverju dró hann þetta ekki til baka fyrir
-
RiddarinnÞetta hefur líklega verið of nálægt sannleikanum
-
Ólafur JónssonFréttin er ekki rétt.
-
Úlfar Þór B AsparJú jú
Egill Einarsson eða Gillzenegger hefur fjarlægt umdeilda færslu af heimasíðu sinni Gillz.is en í seinni fréttum Sjónvarps á mánudag var sagt frá því að lögreglu hefði verið send hún til rannsóknar.
Færslan sem um ræðir var undir lið sem kallast Fréttastofa Gillz en þar nafngreinir hann fjórar konur, femínista, sem hann segir að hafi verið of áberandi í fjölmiðlum undanfarið og ýjar að því að þeim væri best að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Strax eftir fréttatímann var fréttin horfin en Egill gerir ekki mikið úr þeirri ákvörðun. „Ég tók hana ekkert út, ég bara faldi hana í bili," segir hann, en hann hefur ekki tekið endanlega ákvörðun um hvort hann setur hana inn aftur og segir að ekki hafi verið haft samband við sig út af málinu.
Ástæðuna fyrir því að hann fjarlægði færsluna segir hann fyrst og fremst fjölskylduna. „Mamma horfir væntanlega á tíufréttir og svona, þannig að ég tók fréttina út út af henni."
Til baka







Senda inn efni
