[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Risastórt auglýsingaspjald með mynd af Beckham á brókinni í miðborg Mílanó.

Risastórt auglýsingaspjald með mynd af Beckham á brókinni í miðborg Mílanó. AP

Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 3.4.2008 | 15:53

Mamma Beckhams brjáluð

Móðir Davids Beckhams varð alveg brjáluð þegar hún sá myndir af syni sínum á nærhaldinu einu fata í auglýsingum fyrir ítalska tískuhúsið Emporio Armani.

Beckham hefur sagt frá því að hann hafi verið mjög stressaður yfir því að sitja fyrir næstum nakinn, en mestar áhyggjur hafi hann þó haft af viðbrögðum Söndru móður sinnar.

Sagði hann þetta hafa verið í fyrsta sinn sem hann sat fyrir á auglýsingamynd í engu nema nærbuxum.

„Svo þegar myndirnar birtust varð mamma fyrst til að hringja í mig og spurði: Hvað á þetta að þýða? Ég reyndi að útskýra málið fyrir henni en hún skildi þetta ekki alveg. Sem betur fer höfum við aldrei verið saman í bíl og ekið framhjá einu af auglýsingaskiltunum.“

Í spjallþætti Jay Leno uppljóstraði Beckham ennfremur að hann væri ekki mjög fyndinn. Viktoría kona sín væri sú fyndna í fjölskyldunni.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir