Geir eða Ólafur Ragnar?
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Th. GunnarssonÁstþór Magnússon?
-
Sigurður JónssonGEIR H.HAARDE STERKUR LEIÐTOGI.
-
Ragnar BorgþórsVölva mánaðarins
-
Ómar Þ. ÁrnasonVæntanlega er þetta Geir
Bandaríski listamaðurinn Dan Lacey hefur sérhæft sig í allsérstakri gerð málverka, en hann málar nær eingöngu myndir af frægu fólki með pönnukökur á hausnum sem hann býður svo til sölu á uppboðsvefnum Ebay.
Þar er nú hægt að bjóða í myndina hér að ofan, en á henni gefur að líta samkvæmt lýsingu forseta Íslands, Olaf Ragnar Grimmson með frosna pönnuköku á höfðinu. Nýfengin frægð Geirs H. Haarde forsætisráðherra á alþjóðavettvangi hefur því væntanlega ekki borist alla leiðina til Las Vegas þar sem listamaðurinn hefur aðsetur.
Myndin er aðeins 10 sinnum 15 sentimetrar að stærð og fyrir áhugasama má geta þess að lágmarkstilboð er tæplega einn Bandaríkjadalur.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni
