[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Jóhanna Guðrún syngur Is it True? á Austurvelli.

Jóhanna Guðrún syngur Is it True? á Austurvelli. mbl.is/Golli

Innlent | mbl.is | 17.5.2009 | 18:06

Evróvisjón á Austurvelli

„Gaman að sjá ykkur," sagði Jóhanna Guðrún Jónsdóttir þegar hún kom upp á svið á Austurvelli nú síðdegis þar sem þúsundir Reykvíkinga fögnuðu henni.

Jóhanna Guðrún flutti flutti síðan Evróvisjónlagið Is it True? en áður höfðu bakraddarsöngvararnir, þau Friðrik Ómar, Hera Björk og Erna Hrönn, flutt Krummi svaf í klettagjá, sem þau sögðust hafa sungið í samkvæmi sem íslenska sendiráðið í Moskvu hélt í tengslum við Evróvisjónkeppnina.

Jóhanna Guðrún á Austurvelli undir kvöld.

Jóhanna Guðrún á Austurvelli undir kvöld. mbl.is/Golli

Páll Óskar stýrði samkomunni á Austurvelli en Reykjavíkurborg og Ríkisútvarpið stóðu fyrir henni í tilefni af velgengni íslenska hópsins í Evrópusöngvakeppninni. Þar varð Ísland í 2. sæti á eftir Noregi. 

Um 20 stiga hiti er í miðborg Reykjavíkur sem jók á stemmninguna í miðborginni.

Kastljós Sjónvarpsins verður helgað Evróvisjón söngvakeppninni í kvöld.

Fara til baka Til baka

Íslensk Evróvisjónstemmning

Íslenski Evróvisjónhópurinn kom í dag heim frá Moskvu en Jóhanna Guðrún Jónsdóttir endaði í 2. sæti í úrslitum Evróvisjón í gærkvöldi. Þúsundir manna mættu á Austurvöll til að fagna íslensku hetjunum.

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag