[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Girnilegur?

Girnilegur?

Veröld/Fólk | mbl.is | 8.10.2009 | 16:04

Brjálaði borgarinn inniheldur 1.500 hitaeiningar

Hann samanstendur af ostborgara með beikoni og kleinuhring í stað hamborgarabrauðs, borgarinn sem gerði allt vitlaust á hátíð sem er nýafstaðin í Massachusetts í Bandaríkjunum. Yfir þúsund slíkir Brjálaðir borgarar (Craz-E Burgers) seldust dag hvern á hátíðinni sem stóð yfir í sautján daga. Sú staðreynd að borgarinn telur litlar 1.500 hitaeiningar og inniheldur gríðarlegt magn sykurs og mettaðrar fitu, hafði engin áhrif á vinsældirnar.

Aðstandendur hátíðarinnar, sem kallast Stóra E-ið eða Big E, kynnti borgarann sem einkennis mat hátíðarinnar og lýsti honum sem unaðslegum bita þar sem ólíkum tegundum matar er blandað saman. Niðurstaðan er ný upplifun fyrir bragðlaukana, mjúkur borgari með stökku beikoni og sykursætu brauði.

Sagan segir að Brjálaði borgarinn hafi orðið til á veitingastað í Georgiu sem þurfti að grípa til þess ráðs að nota kleinuhringi þegar hamborgarabrauðin kláruðust. Borgarinn var þá kallaður Luther borgarinn eftir söngvaranum Luther Vandross sem var sólginn í þennan óvenjulega hamborgara.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars