[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Hanski úr fórum Jacksons, svipaður þeim sem  seldur var í New York í kvöld.

Hanski úr fórum Jacksons, svipaður þeim sem seldur var í New York í kvöld. Reuters

Veröld/Fólk | mbl.is | 22.11.2009 | 00:43

Hanski Jacksons seldist á 350 þúsund dali

Hanski skreyttur gervidemöntum, sem Michael Jackson bar þegar hann dansaði fyrst „moonwalk" dansinn árið 1982 seldist á uppboði á Hard Rock Café í New York í kvöld fyrir 350 þúsund dali, jafnvirði rúmlega 43 milljóna króna.

Með sölulaunum og skatti þarf kaupandinn að greiða 420 þúsund dali, jafnvirði 52 milljóna króna. Hann var fyrir uppboðið metinn á 40-60 þúsund dali.

Hanskinn, sem var sniðinn eftir venjulegum golfhanska og er með merkimiða sem á stendur „Made in Korea" var eftirsóttasti munurinn á uppboðinu þar sem yfir 70 munir úr fórum Jacksons voru boðnir upp. Meðal þeirra voru skór og sokkar, myndir af Charlie Chaplin, sem Jackson teiknaði sem barn, sendibréf, plaköt, árituð skyrta og Mercedes Benz árgerð 1985.  

Nánast allir munirnir seldust, flestir á margföldu matsverði. Kaupendur voru m.a. frá Ástralíu, Dubai, Frakklandi, Hong Kong og Japan og buðu gegnum síma eða netið. 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars