[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Ljósmynd af málverkinu Leikaranum eftir Pablo Picasso.

Ljósmynd af málverkinu Leikaranum eftir Pablo Picasso.

Veröld/Fólk | mbl.is | 25.1.2010 | 13:29

Datt og reif Picasso verk

Málverk eftir Pablo Picasso varð fyrir skemmdum á Metropolitan safninu í New York eftir að kona sem mætt var á myndlistarnámskeið missti jafnvægið, datt á myndina og reif hana.

Myndin, sem kallast Leikarinn, er 196x115 cm að stærð en um 15 cm bútur rifnaði upp í neðra horninu við óhappið á föstudag. Talsmenn Metropolitan safnsins hafa ekki gefið nánari útskýringar á því hvernig stóð á því að konan óheppna datt með þessum afdrifaríka hætti.

Í tilkynningu frá safninu segir hinsvegar að skemmdirnar hafi ekki varanleg áhrif á samsetningu verksins og að unnt verði að laga það á næstu vikum, áður en stór Picasso sýning verður opnuð á safninu þann 27. apríl með yfir 250 málverkum eftir meistarann.

Skemmdirnar ættu að vera „lítt áberandi" eftir viðgerð að sögn safnsins.

Picasso málaði Leikarann veturinn 1904-1905 á notaðan striga þar sem annað verk hafði þegar verið málað. Það var gefið Metropolitan safninu árið 1952

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Í gær
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Fimmtudaginn 4. mars
Miðvikudaginn 3. mars
Þriðjudaginn 2. mars
Mánudaginn 1. mars
Laugardaginn 27. febrúar
Miðvikudaginn 24. febrúar
Mánudaginn 22. febrúar
Sunnudaginn 21. febrúar
Laugardaginn 20. febrúar
Fimmtudaginn 18. febrúar
Miðvikudaginn 17. febrúar