Prestur tekur fingraför
Pólskur prestur hefur brugðið á það ráð að setja upp fingrafaraskanna við kirkjudyrnar til að fylgjast með mætingu skólabarna. Tæknin leysir af hólmi gestabók kirkjunnar og eru börnin almennt ánægð með framtakið, telja það spara tíma og koma í veg fyrir biðraðir.
Fjallað var um málið í pólska dagblaðinu Gazeta Wyborcza en þar kom fram að þegar börnin hafa mætt 200 sinnum þurfa þau ekki að mæta í próf áður en þau eru fermd.
Kirkjan er í bænum Gryfow Slaski og er presturinn, Grzegorz Sowa, ánægður með reynsluna af kerfinu fram að þessu.
Mörg barnanna ættu að sleppa við prófið enda er kirkjusókn mjög góð í Póllandi.
Til baka







Senda inn efni
