[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Mynd af YouTube.

Mynd af YouTube.

Veröld/Fólk | mbl.is | 3.2.2010 | 08:31

Skoðaði nektarmyndir í beinni útsendingu

Ástralskur bankastarfsmaður er í vondum málum eftir að til hans sást í beinni sjónvarpsútsendingu skoða myndir af hálfnakinni fyrirsætu í tölvunni sinni.

Sjónvarpsstöðin Channel 7 var að ræða við verðbréfasérfræðing hjá  bankanum Macquarie Private Wealth í beinni útsendingu. Fyrir aftan sást samstarfsmaður sérfræðingsins skoða myndir af fyrirsætunni Miröndu Kerr í tölvunni sinni en hann gerði sér augljóslega ekki grein fyrir því að til hans sást. Myndskeiðið var auðvitað sett á vefinn YouTube og hefur verið mikið skoðað þar. 

Yfirmönnum bankans var hins vegar ekki skemmt og segjast munu taka hart á málinu.

Myndirnar af Kerr sáust greinilega í sjónvarpsútsendingunni. Það var ekki fyrr en viðtalinu var að ljúka, að bankamaðurinn leit upp og uppgötvaði að hann hafði sést í sjónvarpinu.

Að sögn ástralskra fjölmiðla hefur starfsmannastjórn Macquarie nú sent öllum 11.500 starfsmönnum bankans tölvupóst með reglum um netnotkun.  

Myndskeiðið á YouTube

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Í gær
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Fimmtudaginn 4. mars
Miðvikudaginn 3. mars
Þriðjudaginn 2. mars
Mánudaginn 1. mars
Laugardaginn 27. febrúar
Miðvikudaginn 24. febrúar
Mánudaginn 22. febrúar
Sunnudaginn 21. febrúar
Laugardaginn 20. febrúar
Fimmtudaginn 18. febrúar
Miðvikudaginn 17. febrúar
Þriðjudaginn 16. febrúar
Mánudaginn 15. febrúar