Bankamanni bjargað
Bankamanninum David Kiely verður ekki sagt upp störfum hjá ástralska bankanum Macquarie Bank. Kiely hefur vakið heimsathygli eftir að hann varð uppvís að því að skoða nektarmyndir í tölvu sinni í beinni sjónvarpsútsendingu.
Myndskeið af atvikinu var sett á YouTube og vakti mikla athygli. Fréttir bárust af því, að Kiely kynni að missa starf sitt fyrir að brjóta vinnureglur. Strax hófs herferð á netinu fyrir því að bankamaðurinn héldi starfinu og hún hefur nú borið árangur.
Í yfirlýsingu frá bankanum segir, að Kiely verði áfram starfsmaður Macquarie. Bæði bankinn og Kiely biðjist afsökunar á þeim óþægindum, sem þetta mál kunni að hafa valdið.
Kiely sást í útsendingunni skoða myndir af áströlsku fyrirsætunni Miröndu Kerr á meðan félagi hans tjáði sig fjálglega um vaxtamál í beinni sjónvarpsútsendingu. Í lok útsendingarinnar sést Kiely snúa sér við, að því er virðist undrandi, og þá sér hann sjónvarpsvélina.
Að sögn breska útvarpsins BBC er því haldið fram að Kiely hafi verið fórnarlamb hrekkjalóma. Hann hafi fengið sendan tölvupóst með myndunum og opnað hann í sakleysi sínu. Hann hafi síðan fengið annan tölvupóst þar sem honum var sagt að snúa sér við, sem hann gerði og rak upp stór augu þegar hann sá myndavélarnar.
Málið hefur einnig aukið áhuga á Kerr, sem er 26 ára gömul áströlsk fyrirsæta. Leit að nafni hennar hefur aukist um 100% á Google eftir að myndskeiðið birtist á YouTube.
Kerr, sem er 26 ára gömul fyrirsæta, sem hefur m.a. sýnt undirföt frá Victoria Secret og er trúlfofuð kvikmyndaleikaranum Orlando Bloom. Kerr sagðist aðspurð myndi skrifa undir undirskriftalista til stuðnings Kerrs yrði hún beðin um það.
Til baka







Senda inn efni

