[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Staður og stund

Veröld/Fólk | mbl.is | 6.2.2010 | 09:07

Í lagi að senda „vafasöm" SMS

Kínversk stjórnvöld reyna nú að fullvissa ástfangin pör um að það varði ekki við lög að senda hvort öðru „vafasöm" SMS þótt nú standi yfir mikil herferð yfirvalda gegn klámi í netinu og farsímum.

Tveir háttsettir embættismenn útskýra nákvæmlega í blaðinu Beijing News í dag hvernig klámlöggjöfin virkar.

„Ef vinur tekur (klámfengin skilaboð) illa upp þá er hugsanlegt að brot hafi verið framið, en ef vininum þykja þau skemmtileg og báðir skiptast á slíkum boðum þá er að sjálfsögðu ekki víst að brot  hafi verið framið," hefur blaðið eftir  Hu Yunteng, sem hefur yfirumsjón með rannsóknardeild hæstaréttar Kína.

„Ef vinir eða félagar skiptast á klúru innihaldi eða eru með glens og grín hvor við annan í skilaboðum, þá mun þungi dómskerfisins ekki leggjast á dónaskap slíks fólks."

Dómsyfirvöld segja að þau beini spjótum sínum að glæpamönnum, sem beri ábyrgð á fjöldasendingum á klámi. 

Samkvæmt kínverskum lögum getur lögregla sett hvern þann, sem dreifir kámfengnum eða móðgandi boðum í gæsluvarðhald í 10 daga. 

Að sögn kínverskra fjölmiðla handtók lögregla nærri 5400 manns á síðasta ári í tengslum við herferð gegn klámi á netinu og lokaði þúsundum vefsíðna.  

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Í gær
Mánudaginn 8. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Fimmtudaginn 4. mars
Miðvikudaginn 3. mars
Þriðjudaginn 2. mars
Mánudaginn 1. mars
Laugardaginn 27. febrúar
Miðvikudaginn 24. febrúar
Mánudaginn 22. febrúar
Sunnudaginn 21. febrúar
Laugardaginn 20. febrúar
Fimmtudaginn 18. febrúar
Miðvikudaginn 17. febrúar
Þriðjudaginn 16. febrúar
Mánudaginn 15. febrúar
Föstudaginn 12. febrúar
Fimmtudaginn 11. febrúar
Miðvikudaginn 10. febrúar
Þriðjudaginn 9. febrúar
Mánudaginn 8. febrúar