Hálfnaktar konur mótmæla í Úkraínu
Bloggað um fréttina
-
Einhver ÁgústGlæsilegar!!
-
Jón Aðalsteinn JónssonFer ekki að vora
-
Axel Jóhann HallgrímssonVirkar þetta?
-
Gunnar Th. GunnarssonÁfram Sóley!
Fjórar ungar konur, berar að ofan, ruddust inn á kjörstað í Kænugarði í Úkraínu í dag og vildu mótmæla skorti á lýðræði í landinu. Síðari umferð forsetakosninga stendur nú yfir í Úkraínu þar sem kosið er á milli Julíu Timosjenkó og Viktors Janúkóvítsj.
Konurnar, sem eru félagar í samtökum femínista, sem nefnast Femen, ruddust inn á kjörstaðinn skömmu áður en til stóð að Janúkóvítsj kæmi þangað til að kjósa. Umrædd samtök hafa vakið athygli á sér í Úkraínu fyrir óvenjulegar mótmælaaðgerðir.
„Hættið að nauðga lýðræðinu," hrópuðu konurnar. Þær héldu á spjöldum þar sem m.a. stóð: Hjálp! Nauðgun! Þær voru aðeins klæddar í gallabuxur og með grænt límband yfir brjóstvörtunum.
Konurnar sögðu við blaðamenn að þær væru að mótmæla endalokum lýðræðis í Úkraínu og þau mótmæli beindust ekki sérstaklega að forsetaframbjóðendunum.
Félagar í Femen eru flestir háskólanemar. Femen-konur vöktu alþjóðlega athygli í sumar þegar þær stóðu fyrir mótmælum gegn kynlífsiðnaði í Úkraínu í miðborg Kænugarðs.
Til baka







Senda inn efni
