Ísland í fyrri riðlinum í Ósló
Bloggað um fréttina
-
Doddi - Þorsteinn G. JónssonYou say I am the moonlight in a moment like this
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirÉg hef ekki heyrt vinningslagið
-
Jón ArnarEurovision update III 07-02-2010
-
Gunnar Th. GunnarssonSvona á að skipta í riðla:
-
Sverrir Þór MagnússonEuró-vibbi
Ísland mun keppa í fyrri riðlinum í undankeppni Evróvision söngvakeppninnar í Ósló þann 25. maí. Dregið var í riðlana í dag og eru 17 þjóðir í hvorum riðli. Þá varð einnig ljóst að Hera Björk Þórhallsdóttir mun syngja lag sitt Je ne Sais Quoi í síðari hluta riðilsins en ekki er búið að draga endanlega um töfluröð.
Fimm lönd: gestgjafarnir Noregur auk Bretlands, Frakklands, Spánar og Þýskalands fara beint í úrslitakeppnina.
Í fyrri riðlinum eru eftirtalin lönd:
Serbía
Finnland
Rússland
Bosnía & Herzegóvína
Moldóva
Lettland
Eistland
Grikkland
Ísland
Malta
Portúgal
Makedónía
Hvíta-Rússland
Belgía
Pólland
Albanía.
Í síðari riðlinum eru:
SvissLitháen
Svíþjóð
Úkraína
Danmörk
Aserbaijan
Ísrael
Armenía
Tyrkland
Georgía Írland
Slóvenía
Holland
Búlgaría
Kýpur
Rúmenía
Króatía.
Til baka







Senda inn efni
