[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Conrad Murray, var læknir Michael Jacksons.

Conrad Murray, var læknir Michael Jacksons. HO

Veröld/Fólk | mbl.is | 8.2.2010 | 07:40

Læknir Jacksons ákærður

Saksóknari í  Los Angeles hefur ákveðið að höfðað verði mál gegn lækni Michael Jacksons sem lést sl. sumar. Læknirinn, Conrad Murray, er grunaður um manndráp. Reiknað er með að ákæran verði birt í dag.

Búist er við að ákæran hljóði upp á manndráp af gáleysi. Við krufningu kom í ljós að mikið magn af sterku svefnlyfi, Propofol, var í líkama hans. Jackson hafði einnig neytt fleiri lyfja m.a. sterkra verkjalyfja.

Murray hefur sagt að hann hafi gefið Jackson Propofol þar sem hann hafi þjáðst af svefnleysi. Hann hefur hins vegar ávallt neitað að hafa gefið honum nokkuð sem gæti valdið dauða hans.

Lögfræðingar læknisins hafa átt í viðræðum við embætti saksóknara síðustu daga. Lögfræðingarnir hafa viljað forða því að Murray yrði dreginn handjárnaður fyrir dómara.

Jackson lést 25. júní í fyrra fimmtugur að aldri.

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars