[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Leno, Oprah og Letterman fylgjast með Super Bowl.

Leno, Oprah og Letterman fylgjast með Super Bowl.

Veröld/Fólk | mbl.is | 8.2.2010 | 09:56

Oprah, Letterman og Leno saman í auglýsingu

Bein útsending frá Super Bowl, úrslitaleik bandarísku ruðningsdeildarinnar, er einn helsti sjónvarpsviðburður ársins í Bandaríkjunum. Auglýsendur borga stórfé fyrir auglýsingatíma og oftar en ekki er létt yfir auglýsingunum. Sú auglýsing sem mesta athygli vakti í nótt var um spjallþátt Dave Lettermans en ásamt honum komu þáttastjórnendurnir Oprah Winfrey og Jay Leno fram í auglýsingunni.

Að sögn bandarískra fjölmiðla þykir auglýsingin, sem tekin var upp í síðustu viku, til marks um að þeir Leno og Letterman hafi samið einhverskonar vopnahlé. Auglýsingin minnir á aðra auglýsingu, sem Letterman gerði með Oprah fyrir nokkrum árum og einnig var birt meðan á Super Bowl stóð. 

Í nýju auglýsingunni sitja Letterman, Winfrey og Leno á sófa og  horfa á úrslitaleikinn og Letterman segir, að þetta sé versta Super Bowl partí sem hann hafi verið í.

Oprah segir að Letterman eigi að vera kurteis og Leno segir: „Hann segir þetta bara vegna þess að ég er hér." Letterman hermir þá eftir Leno.

Þótt verið sé að auglýsa þátt Lettermans á CBS sjónvarpsstöðinni þykir auglýsingin einnig jákvæð fyrir Leno, sem mun á ný taka við stjórn Tonight Show þáttarins á NBC klukkan 11:35 þegar vetrarólympíuleikunum í Vancouver lýkur.

Leno kom í síðustu viku fram í þætti Oprah til að kynna þessa breytingu. Þegar NBC ákvað að láta Leno taka á ný við þættinum og láta Conan O'Brian, sem tók við af Leno á síðasta ári, fara gagnrýndi Letterman Leno fyrir að hjálpa NBC við að losna við O'Brien. 

Auglýsingin á YouTube

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars