Penélope Cruz í nýrri mynd von Triers
Upplýst var í morgun, að spænska leikkonan Penélope Cruz muni leika aðalhlutverk í væntanlegri kvikmynd danska leikstjórans Lars von Triers, Melancholia, sem til stendur að taka upp síðar á árinu.
Í gærkvöldi fékk mynd von Triers, Antichrist, 7 Robert-verðlaun þegar dönsku kvikmyndaverðlaunin voru veitt. Meðal annars var myndin valin besta danska mynd síðasta árs og von Trier besti leikstjórinn.
Berlingske Tidende fjallar um þetta í dag og segir að von Trier hafi oft tekist að fá þekktar konur til liðs við sig. Þannig hafi Nicole Kidman og Lauren Bacall leikið í Dogville-þríleiknum og Björk Guðmundsdóttir í myndinni Dancer in the dark, sem fékk gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2000. Björk var þá valin besta leikkonan.
Blaðið rifjar upp stormasamt samband þeirra Bjarkar og von Triers meðan á gerð myndarinnar stóð. Þau hafi ekki talast við síðan og von Trier sagði í nýlegu viðtali þegar hann var spurður hvort hann hefði haft samband við Björk undanfarinn áratug: „Nei, það þori ég ekki... Ég held að reiður Íslendingur gleymi engu."
Penélope Cruz er þekktasta leikkona Spánverja um þessar mundir og hefur unnið mikið með leikstjóranum Pedro Almodóvar. Hún fékk Óskarsverðlaunin í fyrra fyrir besta leik í aukahlutverki fyrir myndina Vicky Christina Barcelona, sem Woody Allen gerði.
Til baka







Senda inn efni
