[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Angelina Jolie og Brad Pitt í desember.

Angelina Jolie og Brad Pitt í desember. Reuters

Veröld/Fólk | mbl.is | 8.2.2010 | 20:43

Pitt og Jolie stefna News of the World

Bandaríska leikaraparið Brad Pitt og Angelina Jolie hafa stefnt breska blaðinu News of the World fyrir ærumeiðandi aðdróttanir. Snýst málið um frétt, sem blaðið birti 24. janúar þar sem fullyrt var að þau Jolie og Pitt væru að skilja og hefðu náð samkomulagi um skiptingu eigna og forræði yfir börnum þeirra. 

Pitt, sem er 46 ára, og Jolie, sem er 34 ára, eiga saman sex börn og eignir sem metnar eru á nærri 320 milljónir dala, jafnvirði rúmlega 41 milljarðs króna. 

Lögfræðistofan Schillings, sem fer með málið fyrir bandarísku leikarana, segir að fréttin sé röng. Keith Schilling, einn eigandi stofunnar, sagði við ABC sjónvarpsstöðina í Bandaríkjunum að of News of the World hefði ekki orðið við raunhæfum kröfum Pitt og Jolie um að afturkalla fréttina og biðjast afsökunar á hinum röngu og meiðandi ásökunum, sem hafi síðan verið endurteknar í fjölmiðlum víða um heim. 

Sumir fjölmiðlar hafa fullyrt að lögfræðingurinn Sorrell Trope í Los Angeles hafi verið ráðinn til að sjá um skilnaðinn en lögfræðistofa hans hefur staðfest við Schillings, að hún tengist þeim Bratt og Jolie ekkert.  

Pitt og Jolie, sem ekki eru gift, komu fram saman þegar Super Bowl, úrslitaleikur bandaríska ruðningsins, fór fram í gærkvöldi og virtust í besta skapi.   

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars