[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Dr. Conrad Murray mætir í réttarsal Los Angeles í fylgd lögregluþjóna.

Dr. Conrad Murray mætir í réttarsal Los Angeles í fylgd lögregluþjóna. DANNY MOLOSHOK

Erlent | mbl.is | 8.2.2010 | 21:39

Réttað yfir lækni Michaels Jacksons

Conrad Murray, fyrrum læknir Michaels Jacksons, var í dag formlega ákærður fyrir manndráp af gáleysi af saksóknara í Los Angeles. Murray kom í réttarsalinn í lögreglufylgd og lýsti sig saklausan. Verði hann fundinn sekur bíður hans allt að fjögurra ára fangelsisvist.

Blaðamenn og ljósmyndarar söfnuðust saman í kvöld að íslenskum tíma við réttarsalinn til að fylgjast með. Meðlimir úr Jackson fjölskyldunni, þ.á.m. foreldrar Jacksons, eru einnig viðstaddir. Sjálfur mætti Murray í réttarsalinn fyrir stundu í fylgd lögregluþjóna en án handjárna og sagði ekki orð við fjölmiðla.

Jackson lést þann 25. júní síðastliðinn fimmtugur að aldri. Dánarorsök var skammtur af deyfilyfinu propofol í bland við önnur sterk lyf. Murray er ekki talinn hafa gefið honum of stóran af ásetningi og er því ákærður fyrir manndráp af gáleysi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars