[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Rabeder átti glæsilegan bíl sem hann hefur ákveðið að gefa.

Rabeder átti glæsilegan bíl sem hann hefur ákveðið að gefa. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Veröld/Fólk | mbl.is | 9.2.2010 | 12:23

Ætlar að gefa allar eigur sínar

Austurískur milljónamæringur hefur ákveðið að gefa allar eigur sínar eftir að hafa komist að þeirri niðurstöðu að auðurinn gerði ekki annað en að valda honum óhamingju.

Karl Rabeder er 47 ára gamall kaupsýslumaður. Hann á stórt og glæsilegt lúxushús með útsýni yfir Alpana. Hann á einnig gamlan bóndabæ og talsvert landsvæði. Einnig á hann Audi glæsibifreið. Verðmæti eignanna hlaupa á hundruðum milljóna.

Rabeder hefur ákveðið að selja allar eigur sínar. „ Ég ætla mér að eiga ekkert, alls ekki neitt,“ sagði Rabeder í samtali við The Daily Telegraph.

„Peningar spilla og koma í veg fyrir að maður öðlist hamingju,“ sagði Rabeder. „Ég trúði því lengi vel að auður og lúxus myndi sjálfkrafa leiða til hamingju. Ég er alinn upp af mjög fátækri fjölskyldu sem fylgdi þeirri reglu að maður ætti að leggja hart að sér til að öðlast efnisleg gæði og ég fylgdi þessari reglu í mörg ár.“

Rabeder sagðist á seinni árum hafa komist að þeirri niðurstöðu að hann þyrfti að breyta um stefnu. „Ég hafði það á tilfinningunni að ég væri að vinna eins og þræll til að eignast hluti sem mig langaði ekki í og þurfti ekki á að halda.“

Rabeder ætlar að gefa allar eigur sínar til góðgerðarfélags sem stendur fyrir smálánastarfsemi í S-Ameríku.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars