Charlie Sheen ákærður
Leikarinn Charlie Sheen hefur verið ákærður fyrir að ráðast á konu sína og hóta henni. Atburðurinn átti sér stað á jóladag.
Atburðurinn varð ekki til þess að hjónin tækju ákvörðun um að slíta sambandi. Sheen og kona hans, Brooke Mueller, yfirgáfu dómhúsið saman eftir að ákæran hafði verið birt. Þau fóru síðan saman í skíðaferðalag til Aspen í Colorado.
Lögfræðingur Muellers sagði að skjólstæðingur sinn vildi að þessu máli lyki sem fyrst svo að hún og maður hennar gætu haldið áfram að lifa lífi sínu. Málið verður tekið fyrir hjá dómara 15. mars nk. Sheen getur átt von á allt að þriggja ára fangelsi verði hann fundinn sekur.
Til baka







Senda inn efni
