Cohen rúmfastur
Kanadíski söngfuglinn Leonard Cohen hefur verið duglegur við tónleikahald á undanförnum árum þótt hann sé hálfáttræður. Fyrir stuttu neyddist Cohen þó til að slá á frest fyrirhugaðri tónleikaför sinni um Evrópu vegna bakmeiðsla.
Cohen tók upp tónleikahald að nýju árið 2008 eftir fimmtán ára hlé og hefur komið fram á ríflega tvö hundruð tónleikum frá þeim tíma. Hann hélt síðustu tónleika sína á Spáni fyrir fjórum mánuðum, en þá hné hann niður í miðjum klíðum. Þá var matareitrun um að kenna, en að þessu sinni slasaðist Cohen í ræktinni og ljóst að hann mun ekki troða upp á sviði næstu sex mánuðina að minnsta kosti að læknisráði. Ef allt gengur að óskum tekur Cohen upp þráðinn að nýju um miðjan september, en samkvæmt yfirlýsingu frá umboðsmanni hans er hann í toppformi að öðru leyti. Fyrstu tónleikarnir á árinu verða því í Frakklandi 15. september næstkomandi ef allt fer að óskum, en Evrópuferðin verður stutt að þessu sinni, aðeins hálfur annar mánuður.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni
