[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Teiknimyndin Skýjað með kjötbollum á köflum nýtur
vinsælda hér á landi en slær Avatar þó seint við þegar kemur að tekjum.

Teiknimyndin Skýjað með kjötbollum á köflum nýtur vinsælda hér á landi en slær Avatar þó seint við þegar kemur að tekjum.

Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 9.2.2010 | 05:30

Tekjuhæstu kvikmyndir helgarinnar: Kjötbolluregni vel tekið

Það er Avatar, enn og aftur, sem situr í efsta sæti yfir tekjuhæstu kvikmyndir helgarinnar og nema heildartekjur af henni, frá fyrstu sýningum, tæpum 130 milljónum króna.

Um 107 þúsund miðar hafa verið seldir á þessa miklu tæknibrellumynd og hafa sjálfsagt margir séð hana oftar en einu sinni.

Hin bráðskemmtilega Skýjað með kjötbollum á köflum, nýjasta teiknimynd Sony, fylgir fast á hæla Avatar enda vinsælt helgarsport hjá fjölskyldum að fara í bíó.

Hefndardramað Edge of Darkness, með þungbrýndum Mel Gibson í aðalhlutverki, er þriðja tekjuhæsta myndin. Rómantíska gamanmyndin It's Complicated er í fjórða sæti. 

Íslenskar myndir halda sér á lista, Bjarnfreðarson og Mamma Gógó, báðar margtilnefndar til Eddunnar í ár og hafa hlotið afbragðsdóma.

 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars