The White Stripes í hart við flugherinn
Rokkhljómsveitin The White Stripes ætlar í hart gegn bandaríska flughernum, sem notaði eitt af lögum hljómsveitarinnar í sjónvarpsauglýsingu í leyfisleysi.
Í yfirlýsingu frá hljómsveitinni segir að þau séu bæði móðguð og reið yfir notkun lagsins í auglýsingunni, sem sýnd var á besta tíma á meðan Super Bowl keppninni s.k., úrslitum bandaríska fótboltans, stóð á sunnudag. Auglýsingahléið í leiknum er dýrasti auglýsingatími í bandarísku sjónvarpi. The White Stripes ætla að bregðast hart við til að stöðva notkun lagsins.
„Við teljum að lagið okkar hafi verið tekið upp og notað án leyfis okkar eða útgefenda okkar. The White Stripes eru bæði móðguð og reið yfir því að flugherinn láti svo virðast sem að við höfum heimilað að eitt af okkar lögum sé notað til að hvetja til nýliðaskráningar í stríði sem við styðjum ekki.
The White Stripes styðja herinn á heimavelli og á þeim tímum sem þjóðin okkar þarf á honum að halda og reiðir sig á hann. Við viljum hinsvegar ekki vera tannhjól í þeirri vél sem knýr stríðið áfram og vonumst til þess að hersveitir okkar snúi aftur heim sem fyrst heilar á húfi."
Í innslaginu var lýst eftir nýliðum í flugherinn, sem m.a. tekur þátt í stríðinu í Írak og Afganistan, undir hljóm lagsins Fell in love with a girl. Talsmenn flughersins hafa ekki tjáð sig um málið.
Til baka







Senda inn efni
