Skúlptúr eftir listakonuna Guðrúnu Nielsen hefur verið afhjúpaður í garðinum Greenham Common í Berkshire á Englandi.
Áður var þar herstöð þar sem geymdar voru bandarískar kjarnorkuflaugar en skúlptúrinn er unninn úr endurunnu hráefni frá herstöðinni í tilefni af umbreytingu svæðisins.