Sjónvarpsstöðin MTV leitar þessa dagana að besta tónlistarmyndbandi allra tíma og hafa sérfræðingar frá stöðinni MTV 2, MTV Base og VH1 hnoðað saman lista yfir þau 100 og upp úr honum 10 laga lista yfir bestu tónlistarmyndbönd allra tíma. Eitt þeirra er myndband við lag Bjarkar, „All Is Full Of Love“. Myndin hér fyrir ofan er úr því myndbandi.
Það er svo netverja að greiða atkvæði um besta myndbandið, á vefsíðunni mtv.co.uk. Kosning hefst 18. ágúst og lýkur á miðnætti 14. september. Listi yfir 10 bestu myndböndin verður birtur 21. september.
Hægt er að horfa á myndbönd og kjósa á slóðinni: www.mtv.co.uk/channel/mtvuk/competitions/greatest-video-ever. Frá þessu segir á vefsíðu Bjarkar og vefsíðu MTV.
Vefsíða Bjarkar: bjork.com