[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Erlent | mbl.is | 5.10.2004 | 14:31

Dæmdur í lífstíðar fangelsi fyrir að misþyrma drengjum kynferðislega

Sextugur breskur milljónamæringur, sem misþyrmdi fjölda drengja kynferðislega, hefur verið dæmdur í lífstíðar fangelsi en hann getur sótt um reynslulausn eftir rúm sex ár. Brotaferill mannsins er talinn hafa varað í fjóra áratugi.

Dómur var kveðinn upp yfir William Goad í borginni Plymouth fyrir brot gegn 14 drengjum á aldrinum 8-16 ára. Talið er að Goad hafi brotið gegn mun fleiri drengjum og vitni sagðist hafa heyrt hann stæra sig af því að hafa slegið eigið met í því að misnota 142 drengi á einu ári.

Sum fórnarlamba Goads báru að þeir hefðu verið beittir ofbeldi allt að 3-4 sinnum í viku á 2-3 ára tímabili. Saksóknarar sögðu, að Goad hefði boðið drengjunum vel launuð störf í verslun sinni og síðan boðið þeim heim til sín þar sem misnotkunin hófst.

Goad játaði á sig þau brot, sem hann var ákærður fyrir. Hann hélt því fram að hann hefði verið misnotaður sjálfur þegar hann var drengur, en vildi ekki veita lögreglu aðstoð við að rannsaka þær fullyrðingar.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars