[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Framkvæmdir við myllurnar, sem eiga að vinna úr hráefni fyrir pappírsiðnaðinn, eru þegar vel á veg komnar.

Framkvæmdir við myllurnar, sem eiga að vinna úr hráefni fyrir pappírsiðnaðinn, eru þegar vel á veg komnar. Reuters

Erlent | mbl.is | 30.4.2006 | 17:20

Búist við fjölmennum mótmælum í Argentínu þar sem pappírsmyllum verður mótmælt

Búist er við því að tugir þúsunda manna taki þátt í fjöldagöngu umhverfisverndarsinna sem munu eiga sér stað í argentínska bænum Gualeguaychu. Skipuleggjendur mótmælanna segja að um fjölmennustu göngu umhverfisverndarsinna í sögu landsins sé að ræða. Kallað er eftir því að hætt verði við byggingu á tveimur pappírsmyllum á úrúgvæska hluta árinnar sem skiptir löndunum í tvennt.

Úrúgvæar segja að myllurnar verði öruggar og þeir vilji þau störf og þær fjárfestingar sem þeim fylgi.

Deilan hefur nú staðið í rúmt ár og ekkert bendir til þess að hún muni leysast í bráð.

Mótmælendur í Argentínu hafa lokað aðalbrúnni sem tengir Argentínu við Úrúgvæ. Nú hefur ríkisstjórn landsins farið með málið til Alþjóðadómstólsins í Haag.

Ríkisstjórnin segir að Úrúgvæ hafi brotið samkomulag sem nýst um verndun árinnar.

Mótmælendurnir, sem njóta stuðnings alþjóðlegra umhverfisverndunarsamtaka eins og Grænfriðunga, trúa því einfaldlega ekki að náttúrunni stafi engin ógn af myllunum, en það segja finnsku og spænsku verktakarnir sem munu reisa myllurnar.

Úrúgvæmenn vilja störfin og þá fjárfestingu sem fylgir verkefninu, en hún nemur um einum milljarði dala.

Svo virðist sem að menn nái ekki að miðla málum í deilunni, en báðir forsetar landanna hafa skotið föstum skotum hvor að öðrum vegna hennar. Kirkjunnar menn hafa verið fengnir til þess að miðla málum og þá hafa milljónir dala tapast í viðskiptum milli þjóðanna, sem alla jafna eiga í áætum samskiptum sín á milli.

Framkvæmdir við myllurnar, sem eiga að vinna úr hráefni fyrir pappírsiðnaðinn, eru þegar vel á veg komnar.

Talið er að mótmælin muni sameina mótmælendur í Argentínu og að Úrúgvæmenn verið ennþá harðari í afstöðu sinni að vinna við byggingu myllnanna eigi að halda áfram.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars