[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Hvassaleiti, 103 Reykjavík Hvassaleiti Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík
Evangelinu Carrozo sem er grænfriðungur og kjötkveðjuhátíðardrottning mótmælti mengandi verksmiðjum sem Útúgvæ hyggst reisa.

Evangelinu Carrozo sem er grænfriðungur og kjötkveðjuhátíðardrottning mótmælti mengandi verksmiðjum sem Útúgvæ hyggst reisa. Reuters

Erlent | AP | 12.5.2006 | 14:45

Fáklædd mótmæli gegn mengandi verksmiðjum í Úrúgvæ

Argentína og Úrúgvæ deila nú um áform Úrúgvæ um að reisa tvær trjámauksverksmiðjur við á sem skilur löndin að. Argentína telur að verksmiðjurnar hafi slæm áhrif á umhverfið en Úrúgvæ neitar því.

Forsætisráðherra Spánar, Jose Luis Rodriguez Zapatero hitti forseta Argentínu og Úrúgvæ á fundi en Evrópusambandsið fundar nú með leiðtogum Mið- og Suður-Ameríku í Vínarborg.

Talsmaður spænsku stjórnarinnar, Fernando Moraleda sagði að Spánn væri tilbúinn til að taka þátt í viðræðum og miðla málum komi til þess en þó taldi hann að frumkvæði þess þyrfti að koma frá hinum löndunum.

Kostnaðurinn við að byggja verksmiðjurnar mun vera um 128 milljarðar íslenskra króna og er það stærsta fjárfesting í sögu Úrúgvæ.

Fyrr í mánuðinum kærði Argentína Úrúgvæ fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag þar sem því er haldið fram að Úrúgvæ hafi ekki gefið sér nægilegan tíma til að gera nákvæma umhverfisrannsókn og þeim áhrifum sem verksmiðjurnar kunna að hafa.

Í morgun truflaði kona á bikiníi og hnéháum stígvélum myndatöku af leiðtogahópnum í Vínarborg. Konan kynnti sig sem Evangelinu Carrozo og mótmælti hún byggingu verksmiðjanna.

„Við sögðum ríkisstjórn Úrúgvæ að ljúga ekki að fólki. Þessar trjámauksverksmiðjur menga,” sagði drottning kjötkveðjuhátíðarinnar 2006 í þorpinu Gualeguaychu áður en öryggisvörður vísaði henni á dyr.

Carrozo er í samtökum Grænfriðunga og hafði dulist á meðal ljósmyndaranna í skósíðri, svartri regnkápu áður en hún afklæddist og hóf sín þokkafullu mótmæli.

  • Hin fáklædda Evangelinu Carrozo mótmælti byggingu verksmiðja í Úrúgvæ.

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Sunnudaginn 7. febrúar