[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 10.3.10
9 22 33 36 37 38
10 34   39
Jóker
7 7 4 3 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Álakvísl , 110 Reykjavík Álakvísl Reykjavík
Suðurhlíð, 105 Reykjavík Suðurhlíð Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Sumarhús   Kóngsveg, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Kóngsveg Selfoss (dreifbýli)
Tjarnargata, 101 Reykjavík Tjarnargata Reykjavík
Selvogsgata, 220 Hafnarfjörður Selvogsgata Hafnarfjörður
Norðurnes, 270 Mosfellsbær Norðurnes Mosfellsbær
Fornaströnd, 170 Seltjarnarnes Fornaströnd Seltjarnarnes
Skildinganes, 101 Reykjavík Skildinganes Reykjavík
Goðheimar , 104 Reykjavík Goðheimar Reykjavík
Erlent | AFP | 24.4.2007 | 21:54

Vatíkanið segir fóstureyðingar vera hryðjuverk

Bloggað um fréttina

Næst æðsti embættismaður kenningakerfis í Vatíkaninu fór í dag hörðum orðum um hjónaband samkynhneigðra, sem hann sagði af hinu illa, og sagði fóstureyðingar vera „persónugert hryðjuverk“. Fordæmdi hann „illvirki sem eru næstum ósýnileg“ vegna þess að fjölmiðlar matreiði þau sem „dæmi um framfarir í mannlífinu“.

Angelo Amato erkibiskup, sem er ritari Trúarkenninganefndar kardínála, sagði að fréttir blaða og sjónvarps minntu í mörgum tilvikum helst á „öfugsnúna mynd um hið illa“. Læknamiðstöðvar er framkvæma fóstureyðingar kallaði hann „sláturhús fyrir fólk“.

Vatíkanið og rómversk-kaþólska kirkjan á Ítalíu gagnrýna nú harkalega lagafrumvarp sem kveður á um að ógift pör, bæði af sama kyni og af sitthvoru kyninu, fái að einhverju leyti lögbundin réttindi. Hafa bæði kirkjan og ýmsir kaþólskir stjórnmálamenn gagnrýnt frumvarpið og sagt að það muni leiða til þess að hjónabönd samkynhneigðra verði lögleidd.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars