Sótt að gríslingum í barnasögum

Gríslingur með öðrum tuskudýrum sem voru fyrirmyndirnar að sögunum um …
Gríslingur með öðrum tuskudýrum sem voru fyrirmyndirnar að sögunum um Bangsímon. Reuters

Hollenski stórbankinn Fortis hefur ákveðið að hætta að gefa börnum sparigrísi af tillitssemi við múslíma sem segja það særa trúartilfinningu þeirra. Þá hefur auglýsingaherferð bankans með sparigrís bankans í aðalhlutverki verið stöðvuð í Belgíu. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

Svín eru álitin óhrein í íslam og munu margir viðskiptavinir bankans hafa kvartað undan sparigrísnum Knorbert, sem hefur verið sparibaukur bankans í sjö ár. Talsmaður bankans segir þó ekki rétt að bankinn hafi látið undan þrýstingi múslíma heldur hafi Knorbert einfaldlega runnið sitt skeið. þá standist hann ekki þær kröfur sem gerðar séu til lukkudýra og vörumerkja í fjölmenningarsamfélagi nútímans.

Til stendur að hanna nýtt lukkudýr fyrir bankann en þangað til munu barnungir viðskiptavinir hans fá barnaalfræðiorðabók að gjöf.

Í Bretlandi hafa bankarnir Halifax og NatWest þegar hætt að gefa börnum sparigrísi. Þar hefur leikskólabörnum einnig verið bannað að segja börnum söguna af úlfinum og grísunum þremur og hefur þeim þess í stað verið uppálagt að að segja sömu sögu með kettlingum í aðalhlutverki.

Þá liggur nú fyrir tillaga um það í bæjarráði Dudley að banna allar myndbirtingar af grísum á vegum hins opinbera en í tillögunni er Gríslingur úr sögunni um Bangsímon nefndur sem dæmi um grís sem ætti að banna.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert