Viðgerð á ljósleiðara lokið

Farice-sæstrengurinn.
Farice-sæstrengurinn. mbl.is

Viðgerð á ljósleiðara sem m.a. flytur umferð FARICE-1 sæstrengsins í Skotlandi er lokið.  Ástæða bilunarinnar mun hafa verið girðingarvinna skoskra bænda, en vorverk eru byrjuð þar í sveitum.

Ljósleiðarastrengurinn bilaði síðdegis í gær.  Bilunin hafði m.a. þau áhrif að öll netumferð frá Íslandi og Færeyjum var hægvirkari en ella, enda er afkastageta varasambanda um CANTAT-3 sæstrenginn miklu minni en um FARICE-1 sæstrenginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert