Sagaði kú í stykki með vélsög

Óvenjulegt mál er komið upp í Danmörku en þar hefur 69 ára gamall bóndi verið handtekinn, grunaður um að hafa stolið kú nágranna síns, hlutað hana í sundur með vélsög og hengt kjötið upp í hlöðu sinni.

Lögregla í Jyderup á Sjálandi segir að svo virðist, sem maðurinn hafi hlutað dýrið sundur í nálægum skógi en þar fundust m.a. innyfli og aðrir hlutar af kýrinni.  

Maðurinn, sem grunaður er um verknaðinn, hefur verið ákærður fyrir þjófnað og brot gegn vopnalögum en mikið magn af byssum og skotfærum fannst í húsi hans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert