[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Erlent | mbl.is | 5.7.2009 | 20:21

Varað við raðmorðingja í Suður Karólínu

Lögregla hefur staðfest að raðmorðingi gangi laus í bænum Gaffney í Cherokee í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Fimmtán ára stúlka sem lést í gær var fimmta fórnarlamb mannsins. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

Maðurinn skaut á stúlkuna og föður hennar í húsgagna- og verkfæraverslun fjölskyldu þeirra á fimmtudag og lét faðir hennar lífið í árásinni.

Birt hefur verið teikning af morðingjanum byggð á framburði vitna að árásunum. Auk feðginanna hefur maðurinn drepið 83 og 50 ára mæðgur sem hann batt á heimili annarrar þeirra áður en hann skaut þær og 63 ára ávaxtabónda, sem einnig var skotinn á heimili sínu.  

„Samkvæmt skilgreiningu alríkislögreglunnar FBI þá er þetta raðmorðingi já, segir Bill Blanton, lögreglustjóri í Gaffney. Hann vildi þó ekki veita upplýsingar um það hvort vitað sé hvernig maðurinn veldi fórnarlömb sín en hvatti alla íbúa svæðinu til að vera vara um sig og fylgjast með ættingjum sínum. Hann varaði þó einnig við því að fólk færi að skjóta á þá sem þeim þættu grunsamlegir.

Um 54.000 íbúar búa í bænum sem er suðvestur af borginni Charlotte í Norður-Karólínu.

Um hundrað lögreglumenn vinna að rannsókn málsins.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars