Handteknir fyrir piparkökuskemmdir
Tveir karlmenn, 21 og 26 ára, hafa verið handteknir í Björgvin í Noregi, grunaðir um að hafa um helgina skemmt piparkökuþorp, sem komið hafði verið fyrir í miðborginni. Mikil reiði ríkir í Björgvin vegna þessara skemmdarverka.
Norskir fjðlmiðlar segja, að mennirnir búi báðir í Björgvin. Lögregla hefur litlar upplýsingar veitt en segir að eftir yfirheyrslur verði tekin ákvörðun um frekari málsmeðferð. Ekki sé heldur víst að mennirnir séu piparkökuskemmdarvargarnir.
Piparkökuhúsaþorp hefur verið reist í miðborg Björgvinjar allt frá árinu 1991 og þykir lífga mjög upp á bæinn. Um helgina voru allt að 800 piparkökuhús hins vegar eyðilögð. Einhverjar myndir náðust á eftirlitsmyndavélar og einnig fékk lögreglan ábendingar.
Til baka








Senda inn efni



