
Frá Charles de Gaulle flugvelli norður af París. AP
Flugumferðarstjórar fá 30 vikna leyfi
Franskir flugumferðarstjórar fá yfir 30 vikna leyfi á hverju ári og njóta ýmissa fríðinda vegna þess að yfirmenn þeirra óttast deilur sem geti leitt til verkfalls.
Í skýrslu sem út kom í Frakklandi í dag kemur fram að flugumferðarstjórar sem vinna fyrir hið ríkisrekna franska flugumferðareftirlit (DGAC) vinni „aðeins um 100 daga á ári ef marka má bókhaldið". Í skýrslunni er ógagnsæi vaktakerfisins gagnrýnt harðlega og bent á að það sé í hæsta máta óeðlilegt hversu mikið leyfi flugumferðarstjórar fái, þ.e. 20 fastar vikur á ári og allt upp undir 11 vikur að auki í óformlegt viðbótarfrí, sem m.a. er veitt ef vaktir eru ofmannaðar.
Í skýrslunni er gefið til kynna að óttinn við verkfall flugumferðarstjóra haldi yfirmönnum þeirra í hinum viðkvæma fluggeira á tánum og þess vegna hafi reynst erfitt að uppræta kerfið, sem stéttarfélag flugumferðastjóra verji auk þess með kjafti og klóm. Stefna yfirvalda virðist fyrst og fremst vera sú að styggja ekki starfsmennina. Í skýrslunni er leitt líkum að því að hið flókna kerfi geti haft áhrif á öryggisstaðla flugvalla.
Til baka








Senda inn efni
