[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 3.3.10
2 8 34 39 41 46
17 25   48
Jóker
2 3 9 6 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Framnesvegur, 101 Reykjavík Framnesvegur Reykjavík
Sólvallagata, 101 Reykjavík Sólvallagata Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Sigtún, 105 Reykjavík Sigtún Reykjavík
Dalaland, 108 Reykjavík Dalaland Reykjavík
Krummahólar, 111 Reykjavík Krummahólar Reykjavík
Barðastaðir, 112 Reykjavík Barðastaðir Reykjavík
Lækjasmári , 201 Kópavogur Lækjasmári Kópavogur
Klettás, 210 Garðabær Klettás Garðabær
Hafravatn, 270 Mosfellsbær Hafravatn Mosfellsbær
George Papaconstantinou fjármálaráðherra Grikklands bíður erfitt viðfangsefni.

George Papaconstantinou fjármálaráðherra Grikklands bíður erfitt viðfangsefni. YIORGOS KARAHALIS

Erlent | AFP | 9.2.2010 | 16:30

Grikkland hefur ESB og þarf því ekki AGS

Engin þörf er á því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn grípi inn í til að aðstoða Grikkland út úr kreppunni, því Evrópa getur séð um málið, að sögn framkvæmdastjóra efnahagsmála innan ESB, Joaqin Almunia.  

„Við erum að sjálfsögðu öll meðlimir í AGS en við getum og eigum að gera þetta sjálf,"  segir Almunia. „Ef við getum samræmt aðgerðir og sýnt pólitíska staðfestu, ef við notum þau verkfæri sem eru til staðar...við höfum meira en nóg af úrræðum til að gera það sem þarf."

AGS lagði í síðustu viku blessun sína yfir aðgerðaáætlun grísku ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt þeim er m.a. tekið fyrir allar launahækkanir í opinbera geiranum, eldsneytisgjald verður hækkað og eftirlaunaaldurinn sömuleiðis. Ríkisstjórn Grikklands er undir miklum þrýstingi að ná niður þeim gríðarlegu skuldum sem eru við það að sliga þjóðarbúið, en ráðgert er að þær verði rúmar 290 milljarðar evra á þessu ári.

Almunia segir að Grikkir njóti „einróma stuðnings" meðal þjóða Evrópusambandsins. Hinsvegar varar hann við því að enginn fái „ókeypis hjálp" heldur þurfi grísk yfirvöld að sýna fram á að þau skuldbindi sig til að standa undir sinni ábyrgð.   

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Mánudaginn 8. mars