Erlent | AFP | 9.2.2010 | 11:56
Mannskætt snjóflóð í Afghanistan
Að minnsta kosti 28 fórust og 70 slösuðust í snjóflóði í norðurhluta Afghanistans. Mikið hefur snjóað á svæðinu þar sem flóðið féll, að sögn afghanska varnarmálaráðuneytisins.
Bílar grófust í snjó í Salang, fjallaskarði sem tengir höfuðborgina Kabúl við norðurhluta landsins. Ráðuneytið sagði að búið sé að bjarga um 1.500 manns sem lokuðust inni í jarðgöngum í skarðinu vegna snjóflóðanna.
Jarðgöngin eru 2,6 km löng. Fólk sem var fast inni í göngunum hringdi úr farsímum og sagði að þar væri ískuldi og göngin að fyllast af útblæstri bíla. Margir óttuðust um líf sitt.
© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
Til baka
Erlent — Fleiri fréttir
Í gær
11:55
Evran endist í 15-20 ár
09:24
Ásakar ETA um morð
07:49
Blóði spillt í Taílandi
05:30
Staða Grikkja vænlegri
Þriðjudaginn 16. mars
16:20
Hótara sleppt í Svíþjóð
14:01
Fuglaflensa í Rúmeníu
06:55








Senda inn efni



