

Gordon Brown mætir til yfirheyrslu rannsóknarnefndarinnar í mars, en Tony Blair var yfirheyrður í janúar.
Margir vilja fylgjast með yfirheyrslum Breta
Bloggað um fréttina
-
Sveinn Þór HrafnssonÞað ætti að spurja hann um Dover söluna
Þeir Bretar sem vilja fylgjast með yfirheyrslum rannsóknarnefndar um Íraksstríðið yfir Gordon Brown verða að skrá sig á biðlista. Búast má við mikilli aðsókn og má til samanburðar nefna að áður en Tony Blair var yfirheyrður sóttu 3.000 manns um að vera viðstaddir, en aðeins 60 sæti eru í salnum. 120 komust þó að, því hópnum var skipt í tvennt fyrir og eftir hádegi.
Ekki er búið að ákveða hvenær Brown, sem var fjármálaráðherra þegar innrásin í Írak var gerð, verður kallaður fyrir nefndina en búið er að staðfesta að það verður einhvern tíma í mars. Í upphafi stóð til að hann yrði yfirheyrður eftir þingkosningarnar, sem verða í maí. Það var hinsvegar gagnrýnt harðlega með þeim rökum að kjósendur ættu rétt á því að vita áður en gengið er til kosninga hvaða hlutverk Brown lék í aðdraganda stríðsins.
Formaður nefndarinnar, Sir John Chilcot, segir að hann vilji að rannsóknin standi utan við alla flokkapólitík. Brown hafi hinsvegar skrifað honum og sagst vera reiðubúin að mæta hvenær sem er og af „sanngirnissjónarmiðum" hafi honum því verið boðið að koma fyrir kosningarnar. Sjálfur segist Brown ekkert hafa að fela og hann vilji fyrir alla muni útskýra hvers vegna Bretland hafi gert rétt í því að grípa til aðgerða í Írak.
Til baka








Senda inn efni

