[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Spítalastígur, 101 Reykjavík Spítalastígur Reykjavík
Selhólsbraut, 801 Selfoss (dreifbýli) Selhólsbraut Selfoss (dreifbýli)
Arnarheiði, 810 Hveragerði Arnarheiði Hveragerði
Álfhólsvegur, 200 Kópavogur Álfhólsvegur Kópavogur
Bakkastaðir, 112 Reykjavík Bakkastaðir Reykjavík
Fífusel, 109 Reykjavík Fífusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Michelle Obama tekur þátt í átaki sem miðar að því að vekja Bandaríkjamenn til umhugsunar um offitu barna.

Michelle Obama tekur þátt í átaki sem miðar að því að vekja Bandaríkjamenn til umhugsunar um offitu barna. POOL

Erlent | mbl.is | 9.2.2010 | 13:38

Michelle Obama berst gegn offitu barna

Michelle Obama forsetafrú í Bandaríkjunum tekur þátt í átaki sem verið er að hleypa af stokkunum í Bandaríkjunum og miðar að því að berjast gegn offitu barna.

Obama sagði að þessi áætlun væri „mjög metnaðarfull“. Markmiðið væri að útrýma þessu þjóðfélagsmeini. Hún sagði í sjónvarpsþættinum "Good Morning America's" að hún vildi stuðla að því að barna okkar biði önnur og betri framtíð sem byggðist á lengri lífslíkum.

Átakið ber yfirskriftina „Let's Move“. Eitt af því sem lögð er áhersla á er að fræða foreldra um innihald fæðunnar og um mikilvægi hreyfingar. Jafnframt á að bæta þá fæðu sem skólar bjóða upp á.

Obama sagði að eitt af hverjum þremur börnum í Bandaríkjunum þjáðist af offitu. Hún benti á að gríðarlegum fjármunum væri varið til að kljást við afleiðingar offitu. Hún sagði að mikið væri í húfi að Bandaríkjamönnum tækist að breyta um stefnu.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Miðvikudaginn 17. mars