Ný framkvæmdastjórn ESB samþykkt
Evrópuþingið samþykkti í dag tillögu um nýja framkvæmdastjórn Evrópuasmbandsins með yfirgnæfandi meirihluta, 488 atkvæðum gegn 137 en 72 sátu hjá. Portúgalinn José Manuel Barroso verður áfram forseti framkvæmdastjórnarinnar en talsverðar mannabreytingar verða í öðrum embættum.
Nýja framkvæmdastjórnin mun halda fyrsta fund sinn 17. febrúar. Fram kom hjá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í síðustu viku eftir viðræður hennar við Barroso, að framkvæmdatjórnin muni síðar í þessum mánuði taka fyrir umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Fái umsóknin jákvæðar viðtökur verði hún rædd á leiðtogafundi Evrópusambandsins í mars.
Til baka








Senda inn efni



