Fjórir látnir eftir skotárás í Alabama

Fjórir eru látnir eftir árásina. Myndin er úr safni.
Fjórir eru látnir eftir árásina. Myndin er úr safni. AFP/Getty Images/Scott Taetsch

Fjórir eru látnir og tugir eru særðir eftir skotárás í Alabama-ríki í Bandaríkjunum.

Lögregla segir að nokkrir árásarmenn hafi skotið að hópi fólks rétt eftir klukkan 23 á staðartíma í gær. Árásin átti sér stað í borginni Birmingham í Alabama-ríki.

Þrír voru úrskurðaðir látnir á vettvangi, tveir fullorðnir karlmenn og ein fullorðin kona. Sá fjórði lést á sjúkrahúsi. Eins og segir særðust tugir í árásinni, en fjórir eru í lífshættu. 

Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert